Lýsing
ITS MACROS APPIÐ
Undanfarna mánuði höfum við unnið hörðum höndum að appinu okkar sem bætir samskipti okkar og upplifun ykkar og gerir allt miklu skemmtilegra og meira spennandi! Við erum gríðarlega stolt af því að geta boðið þetta sérsmíðaða og sérhannaða app sem tekur á öllum okkar þörfum.
Appið, sem er það eina sinnar tegundar á Íslandi, heldur utan um hvern og einn viðskiptavin og ferðalagið hans að bættri heilsu. Í appinu er dagleg skráning á næringarinntöku – próteinum, kolvetnum, fitu og trefjum – hreyfingu, svefn, líðan, skapi, vatnsdrykkju og fleiru. Auk þess eru ýmiskonar verkefni sem snúa að hugarfari, venjum og bættum lífsstíl.