Almennir skilmálar

Síðast uppfært: 13. maí 2021

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst fyrirvaralaust.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti.

Greiðslumöguleikar

Hægt er að greiða með greiðslukorti eða fá kröfu senda í heimabanka. Sjá einnig greiðsluskilmálana okkar.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað. Ingi Torfi ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Upplýsingar um seljanda:

Ingi Torfi ehf.
Kt. 640920-0170
Fannagili 4
603 Akureyri
its@macros.is
VSK-númer: 140097

Persónuvernd

Ingi Torfi ehf. virðir friðhelgi persónuupplýsinga um viðskiptavini sína. Með því að heimsækja macros.is lýsir þú þig samþykkan þeim hefðum sem lýst er í núverandi yfirlýsingu um persónuvernd og öryggi. Ef þú hefur áður heimsótt vefinn okkar vinsamlega kynntu þér yfirlýsinguna að nýju til að fullvissa þig um að þú þekkir núverandi skilmála. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi öryggi og trúnað við meðferð upplýsinga um þig getur þú haft samband við okkur með tölvupósti á personuvernd@macros.is. Einnig er hægt að lesa persónuverndarstefnuna okkar í heild sinni hér á vefnum.

Persónulegar upplýsingar sem við söfnum

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um viðskiptavini okkar, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi, símanúmeri og kreditkortanúmeri, í tengslum við afgreiðslu á pöntunum eða vegna annarra samskipta við viðskiptavini. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem pantaðar eru. Einnig fjármálatengdar upplýsingar, svo sem kreditkortanúmer og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vörur sem keyptar eru.

Að versla á vefnum okkar

Við hjá Ingi Torfi ehf. leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Í þeim tilgangi notum við svokallaða SSL-dulritunartækni. Með SSL eru upplýsingarnar sem þú flytur frá tölvunni þinni dulritaðir yfir á vefsvæði Ingi Torfi ehf.

Ábyrgðarskilmálar

Vörur og þjónusta frá Ingi Torfi ehf. uppfylla ströngustu gæðakröfur. Full framleiðsluábyrgð er vegna galla á efni og vinnu á framleiðsluvörum fyrirtækisins. Ef vara telst gölluð munum við gera við hana, skipta henni eða endurgreiða, allt án kostnaðar fyrir viðskiptavini. Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, þvotti, vanrækslu, venjulegu sliti eða eðlilegu litatapi sem verður við notkun og eða sökum aldurs vörunnar.