Síðast uppfært: 13. maí 2021
ITS Macros ehf. (hér eftir nefnt “ITS”) mun birta opinberlega gjaldskrá fyrir þjónustu á hverjum tíma. Rétthafi getur nálgast gjaldskrána á skrifstofu ITS og á vefsíðunni macros.is. ITS getur breytt gjaldskrá fyrir áskrift að sinni þjónustu og eða öðrum áskriftarskilmálum með 30 daga fyrirvara. Slíkt skal tilkynnt á heimasíðunni macros.is.
Gjalddagi mánaðarlegra reikninga er fyrsti dagur hvers mánaðar og eindagi 7 dögum eftir gjalddaga. Sé reikningur greiddur eftir eindaga, ber viðskiptavini að greiða dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags skv. III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 auk kostnaðar við innheimtu.
Athugasemdir skulu gerðar við útgefna reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga, ella telst reikningur samþykktur.
ITS áskilur sér rétt til að loka fyrir þjónustur ef reikningur er enn ógreiddur 7 dögum eftir eindaga.
ITS er heimilt að synja rétthafa um þjónustu þegar liðnir eru 7 dagar frá eindaga skuldar án þess að hún hafi verið greidd.
Hafi vanskil viðskiptavinar varað í a.m.k. 90 daga frá eindaga og heildarskuld er a.m.k. 20.000,- að frátöldum vöxtum og kostnaði, áskilur ITS sér rétt til að tilkynna nafn viðskiptavinar á vanskilaskrá Creditinfo Ísland (Lánstraust).
Ef greiðsla hefur ekki borist innan þriggja mánaða áskilur ITS sér rétt til þess að eyða gögnum viðskiptavina.
Athugið að greiðslukostnaður bætist við ef ekki er greitt með greiðslukorti á netinu. Greiðslukostnaðurinn er 150 kr. ef sent er í innheimtuþjónustu banka.