ITS Macros appið
– Þinn ferðafélagi á leið til bættrar heilsu
Þín markmið í þessu persónulega appi, það heldur þér við efnið og styður þig á þínu heilsuferðalagi.
Fræðsla, æfingar, myndbönd, mælingar, uppskriftir og margt fleira.
Appið er séríslensk hönnun og smíði, gerð af ITS Macros fyrir þig.
ITS Macros appið án þjálfunar
Ein greiðsla fyrir 6 mánaða aðgang:
22.900,-
Hagstæður kostur fyrir þá sem vilja kynnast Macros og nota ITS Macros appið sem er stútfullt af fróðleik og hvatningu. App aðgangurinn er fyrir skráningarnar þínar og líðan en án yfirferðar og endurgjafar.
Ef einhverjar spurningar vakna þá er alltaf hægt að heyra í okkur og fá svör og ráðleggingar.
Hvað er innifalið?
- Sérsniðnar macros tölur (kolvetni, prótein, fita) sem þú vinnur með
- Fullur aðgangur að öllum upplýsingum í appinu í 6 mánuði
- Æfingaprógröm
- Hlaupaprógram
- Fræðsla og uppskriftir
- Aðgengi að þjálfurum á messenger 5 daga vikunnar
- Skilaboð frá okkur þar sem við bjóðum á fyrirlestra og peppfundi
- Aðgangur að einstöku Facebook samfélagi
ITS appið í macros þjálfun
Allir sem eru á námskeiði hjá ITS Macros fá aðgang að appinu. Það er sérsniðið forrit sem við erum gríðarlega stolt af að hafa smíðað og er okkar aðal verkfæri á leiðinni að árangrinum þínum, og sú samskiptaleið sem við notum hvað mest.
Mér finnst prógrammið frábært og er svo þakklát fyrir þann stuðning sem þið sýnið.
Öflugt verkfæri fyrir þín markmið
Fjárfestu í þinni heilsu og taktu skrefið að bættu lífi. ITS Macros appið heldur utan um þína næringu, líðan, svefn og orku, allt á einum stað.
Fyrir utan allar ómetanlegu upplýsingarnar og lærdóminn sem má finna á aðgengilegum stað í appinu.
ITS Macros appið
Undanfarna mánuði höfum við unnið hörðum höndum að appinu okkar sem bætir samskipti okkar og upplifun ykkar og gerir allt miklu skemmtilegra og meira spennandi! Við erum gríðarlega stolt af því að geta boðið þetta sérsmíðaða og sérhannaða app sem tekur á öllum okkar þörfum.
Appið, sem er það eina sinnar tegundar á Íslandi, heldur utan um hvern og einn viðskiptavin og ferðalagið hans að bættri heilsu. Í appinu er dagleg skráning á næringarinntöku – próteinum, kolvetnum, fitu og trefjum – hreyfingu, svefn, líðan, skapi, vatnsdrykkju og fleiru. Auk þess eru ýmiskonar verkefni sem snúa að hugarfari, venjum og bættum lífsstíl.
Okkar þjálfun er óháð aldri, hreyfingu og markmiðum og má því segja að nálgun ITS Macros henti öllum þeim sem sækist eftir einhverjum af eftirfarandi þáttum:
Vilt þú:
– Bæta almenna heilsu, bæði líkamlega og andlega
– Bæta við þig þekkingu tengt mat, mataræði og heilsu
– Læra inn á þig og nýja og góða siði
– Koma hreyfingu inn í daglega rútínu
– Bæta hugarfar og jákvæða hugsun
– Viðhalda eða auka hreyfingu
– Bæta endurheimt
– Læra að það er enginn matur bannaður
– Skilja og læra á mat í eitt skipti fyrir öll
– Léttast eða lækka fituprósentu
– Finna aukna orku og starfsgetu
– Auka vöðvamassa
– Þyngjast
– Bæta frammistöðu á æfingum eða í íþróttum
– Prufa nýja hluti og taka áskorunum
– Verða betri útgáfa af sjálfum sér
– Vera partur af frábæru samfélagi
– Læra að leyfa sér
Listinn er síður en svo tæmandi en þessi upptalning er hluti af því sem viðskiptavinir ITS Macros hafa nefnt sem ávinning af því að hafa verið hjá okkur í þjálfun.
Í appinu eru kennslumyndbönd og fræðsla, æfingaprógröm, hlaupaprógram, teygjur, hugleiðsla, jóga, fræðsla um öndun og kælingu og margt margt fleira.
Auk alls þessa verðum við með ýmsa pistla, uppskriftir, pepp, innkaupalista og annað sem gerir þetta eins auðvelt og hugsast getur.
Hvernig er ferlið?
Þjálfun og samskipti
Á þjálfunartímanum er hægt að senda skilaboð á þjálfarateymi ITS Macros 6 daga vikunnar. Við veitum afar persónulega þjónustu og erum alltaf til taks. Í appinu verður einnig hægt að skrifa athugasemd til okkar á hverjum degi og við svörum þeim í appinu.
Fundir
Í upphafi þjálfunar höldum við fræðslufund fyrir hópinn, ef um er að ræða vinnustað þá fær allt starfsfólk aðgang að fundinum þar sem við förum yfir hugsunina og okkar aðferðafræði. Þetta er um 90 min peppfundur til þess að koma öllum í gírinn.
Samfélagið
Í samfélaginu okkar á facebook eru margir viðburðir fyrirhugaðir á næstunni; fyrirlestrar, áskoranir og hreyfiviðburðir. Við teljum að ein af megin ástæðum þess að fólkið okkar hefur náð jafn góðum árangri og raun ber vitni sé sú að við höldum vel utan um okkar hóp og leggjum okkur fram við að hafa hlutina skemmtilega og gerum þetta saman.