Masters 50+
Næsta námskeið er sýnilegt í fellistikunni og þar ætlum við að kenna þátttakendum grunninn í Macros aðferðafræðinni á mjög einfaldan en skilvirkan hátt. Með þessari aðferð munt þú læra að þekkja inn á þínar næringaþarfir til að líða sem best og í samræmi við þín markmið sama hver þau eru, bæta afköst í hreyfingu og vera með jafnari orku yfir daginn ásamt því að bæta styrk, léttast og tónast. Auk þess verðum við með hreyfiáskoranir og vikulegt æfingaplan.
Á þessum 8 vikum hefurðu aðgang að ITS Appinu með þínum persónulegu Macrosum, einnig er aðgangur að sérstökum Facebook hóp sem er bara fyrir 50+ námskeiðið og þar verða sérstakir fundir, áskoranir, hvatning, lausnir og aðhald.